Leita í fréttum mbl.is

Helt sikkert að Klakamótið 2008 var bare i orden

Eyvinn skellti sér til Árhúss Smile ásamt nokkrum vöskum ungum mönnum frá Óðinsvé á hið stórskemmtilega Klakamót í fótbolta.   Við strákarnir frá  Ódense fórum af stað vel fullir og líka fullir  vona  um góðan  árangur á þessu móti.  Stefnan var sett á sigur og ekkert annað.  En fótboltinn er óútreiknanlegur og þrátt fyrir góðan undirbúning, mikinn baráttuvilja, pínu gítarspil og slatta af Odense Classic (4,6%) gekk hverki né rak hjá okkar fallega liði.  Við enduðum í neðri hluta riðilsins með markatöluna 31-6 (Kobbaldo var í marki Whistling) og komumst ekki í úrslitakeppnina.  En mótið var hin besta skemmtun og tókst strákunum í Árhúsinu sem sáu um framkvæmdina mjög vel upp. 

Reyndar má lýsa öllum leikjum okkar Odensemanna í mótinu við gott kynlíf, fyrstu 5 sekúndur allra leikja voru frábærar en eftir það vorum við búnir......

Klakamótið 2009 verður svo haldið hér hjá okkur í Óðinsvé og er stefnan sett á sigur og ekkert annað....

 


Fyrir hvað er verið að þakka þessum mönnum?

Eyvinn hefur veitt því athygli að nokkrir þjálfarar hafa fengið að fjúka í fótboltanum undanfarið.  Allir nema einn vegna afar slaks gengis og þessi eini fyrir að rífa kjaft útaf hræðilegri dómgæslu einhverstaðar lengst útá landi. 

Það sem hefur einnig vakið athygli Eyvans er að í lok allra þessara fréttatilkynninga frá liðunum  færa stjórnir þessara liða fyrrverandi þjálfurunum bestu þakkir.  Fyrir hvað?  Menn eru greinilega ósáttir við það sem gert hefur verið, af hverju þá það þakka fyrir?  Tökum Akranes sem dæmi liðið var farið að spila þann allra leiðinlegasta fótbolta sem sést hefur í heiminum og víðar ef það er möguleiki á þessu tímabili undir stjórn Gauja Þórðar, þökkum fyrir það.  Takk, takk.

Svo fannst Eyvanum fyndinn dómurinn í máli Jónasar "þið eruð allir ömurlegir dómara hér fyrir norðan" Hallgrímssonar, einn leikur í bann, bara fyndið gæjinn hefði verið settur í átjánhundruð20ogfimm mínútna bann allstaðar annarstaðar í heiminum.  Reyndar er það tilfinning Eyvans að hann hafi nú eitthvað til síns máls kallinn, held að menn færu nú ekki að koma með svona svaka yfirlýsingar nema það væri eitthvað til í þeim.

Hér má lesa um mál Jónasar ef menn vilja

 


Hvar er Valli?

 

Hér!  

 


Eldsneytisverð

Hjörtur Guð bloggvinur Eyvans skrifaði magnaða færslu um eldsneytisverð fyrir stuttu sem ég hvet ykkur til að kíkja á hér, það er allveg magnað hvað hægt er að koma miklu til skila bara í einu orði, nákvæmlega það sem Eyvinn vildi sagt hafa um verð á eldsneyti.  Held að Hjörtur verði bara hreinlega að fara að passa sig, þetta er jú ein stór mafía sem drengurinn er að skrifa um.

Ég held samt að Hjörtur sé ekki Guð, bara Guðbjartsson.  Eða hvað?  Er hann kannski Guð?  Svei mér þá ég bara veit ekki.....

Þangað til næst.

Amen. 

 

E.s

Dídan mín fallega segir að Hjörtur sé ekki Guð.  Guð er víst kona.  Og ef Dídan segir það þá bara er það þannig.

 

 

 

 


Nokkur orð

Nú er kominn tími á að Eyvinn skrifi nokkur orð.

 

Nokkur orð.

 

Þá er Eyvinn búinn að skrifa nokkur orð. 


Sælkerakvöldmatur ala Dr. Doolittle

Eyvinn sá um kvölmatinn í kvöld og ákvað kallinn að snara fram rétti sem kallast Cannelloni Toselli Doolittle. 

Þessi réttur er eiginlega nokkuð einfaldur það sem þarf að gera er að byrja á að hita ofninn í 200 gráður, taka réttinn úr kassanum og skella í ofninn, þetta er svo látið bakast í rétt rúmlega hálftíma skv. leiðbeiningum framleiðanda eða þar til osturinn er orðinn flottur.  Mikilvægt er að muna eftir að taka plastfilmuna ofan af álboxinu sem rétturinn er í, það stendur a.m.k. stórum stöfum á kassanum.

Borið fram með frábæru H&M Dídusaltati smakkaðist Cannelloniið alveg svaka vel og verður lengi í minnum haft sem besti pakkamatur sem Dr. Doolittle hefur gert í langan tíma.

Þessu var svo skolað niður með allsvakalegu Rynkeby vatni sem var tappað á flöskur fyrir nokkrum dögum.  Eðal drykkur alveg.

 


Það er hægt að gera allt fyrir 500 kall...

Ég og sonur minn sátum fyrir framan sjónvarpið eitt kvöldið í vikunni og horfðum á Prison break sem er uppáhalds sjóvarpsefni stráksins.  Við strákarnir áttum áhugavert samtal eftir eitt af fjölmörgum hléum sem sjónvarpsstöðavar gera víst til að koma að auglýsingum. 

Eftir umrætt auglýsiningahlé spurði ég strákinn minn sem er á 8. ári hvað hann myndi kaupa sér ef hann ætti smá pening.

"Pabbs, ég held að ég myndi kaupa mér svona Tampax eins og var verið að auglýsa þarna áðan" sagði strákurinn svolítið dreymandi á svipinn.tampax_compak_fresh_super_10364

"Tampax!" Sagði hr. E undrandi "af hverju Tampax?" 

                 

"Jú, sko, það kostar bara 500 kall og það er hægt að gera allt ef maður á svona, maður getur farið í sund hvernær sem maður vill, spilað fótbolta og farið í Tívolí og svona og allskonar bara fyrir 500 kall. Varstu ekki að horfa á auglýsinguna eða hvað?"

Þá er ekki eftir neinu að bíða, hr. E ætlar að skjótast útí búð og kaupa svona Tampax dæmi og gera svo eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni.

       

67tampax                            tampaxB

 


Boðaður starfsviðtal hjá dönsku leyniþjónustunni

Eyvinn gerði sér lítið fyrir um daginn og sótti um starf hjá dönsku leyniþjónustunni eða DLÞ eins og það yrði skamstafað á íslensku.  Starfið var svosem ekkert merikilegt en þetta var starf leigumorðingja og var hugsað sem helgar- og kvöldvinna.  En nóg um það, Eyvinn var boðaður í viðtal ásamt tveimur öðrum umsækjendum, manni að nafni Lars Petersen og konu sem heitir Mette Beck Nilsen.

Lars var fyrstur í viðtalið og var hann látin hafa hlaðna skammbyssu og sagt að fara inn í herbergi, loka á eftir sér og skjóta þann sem væri þar inni, Lars tók byssuna, gekk inní herbergið og lokaði hurðinni.  Skömmu síðar kom Larsarinn út með tárin í augunum og sagðist bara ekki geta skotið konuna sína.

Eyvinn var næstur, fékk sömu byssu og var sagt að fara inn í herbergið og ganga frá þeim sem væri þar inni eða "take care of the person that´s in there" eins og framkvæmdarstjóri starfsmannasviðs DLÞ orðaði það.  Eyvinn fór inní herbergið og sá þá Díduna sína litlu fallegu sitja þar í fallega nýja dressinu sínu frá H&M.  Eyvinn bara gat ekki klárað dæmið og fór líka háskælandi út.

Þá var komið að Mette Beck Nilsen, hún fékk sömu þraut og við hinir, tók byssuna, fór inní herbergið og lokaði á eftir sér.  Skömmu síðar heyrðust sex skothvellir.  Svo kom smá þögn.  Síðan heyrðust þessi líka svakalegu læti, brothljóð og barsmíðar.  Nokkrum mínútum seinna kom Mette út og sagði:

 "Hvaða hálviti setti púðurskot í byssuna, ég þurfti að berja manninn minn í hel með stólnum."

Mette Beck Nilsen fékk vinnuna.  Passið ykkur á henni, hún er á vakt öll kvöld og aðra hverja helgi.


Smá ferðasaga......

Við fjölskyldan skelltum okkur til Þýskalands um daginn sem er nú ekkert sérstaklega merkilegt útaf fyrir sig nema að í þessu tilviki leigðum við okkur Audi Quattro til fararinnar.  Við fimm tróðum okkur í bílinn og lögðum af stað um hádegisbilið frá Óðinsvé.

Þegar við komum að þýsku landamærumum voru Hr. E og fjölskylda stöðvuð af þýskum landamæraverði. 

"Þið eruð á Audi Quattro og eruð fimm í bílnum, þið eru því einum of mörg" Hreytti vörðurinn útúr sér.

Eyvinn reyndi nú að útskýra fyrir manninum á sinni enskdönsku þýsku að þó bíllinn héti Quattro þá væri hann nú samt fimm manna.  Vörðurinn var nú ekki alveg að kaupa það.

Eyvinn og sá einkennisklæddi rifust um að það mættu nú alveg vera fimm í Quattro í smá tíma eða þar til Eyvinn var alveg búinn að fá nóg og bað um að fá að tala við yfirmann.

Jú, jú það komu tveir yfirmenn akandi á.............

.......Fiat Uno!

 


Dýrustu andlit í heimi

Eyvinn var að spá í að fara að láta lappa aðeins uppá sitt annars ágæta smetti, taka hrukkur, minnka nef og eyru og kannski smá fitusog.  Strákurinn fór því að athuga með lýtaaðgerðir á veraldarvefnum og rakst þá á frétt um þá tvo aðila sem hvað mest hafa eytt í aðgerðir svipaðar þeim sem Hr. E var að spá í.  Myndirnar tala sínu máli held ég en konan sem ég held að heiti Joselyn Wildenstein hefur eytt rétt rúmlega 300 og einni milljón ísl. kr. í sitt smetti og Mikki Djakk hefur eytt um það bil öllu sem hann átti í sinn draum um betra lúkk.

PS-JocelynWildenstein   PS-MichaelJackson

Eyvinn hefur lagt drauminn um hið eilífa æskulúkk til hliðar að sinni en fitusogsaðgerðin er enn inní myndinni hjá kalli.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband