Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Afkomuviðvörun!

Hr. E og frú D. fundu skemmtilegan stað hér í vé því er við Óðinn er kennt, Casino Odense.

Fjölskyldan Vilhjálmsson telur því rétt að senda frá sér afkomuviðvörun, vegna taps á 200 dkk í hálfsársuppgjöri samsteypunnar.  Að leggja allt undir á afmælisdaga barnanna er bara ekki allveg að gera sig.


Hefði verið cool að bíða aðeins með handtöku....

...Í svona 45 mínútur, að handaka manninn á milli kl. 10-11 hefði boðið uppá mun skemmtilegri fyrirsagnir, eitthvað í líkingu við þetta:

Handtekinn á milli kl. 10-11 eftir rán í 10-11

 


mbl.is Handtekinn eftir rán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiptir stærðin máli? II

Einhver misskilningur virðist hafa farið á kreik varðandi pistil Eyvans hér á undan.  Svo virðist sem fólk hafi haldið að Eyvinn væri að skrifa um typpastærðir en svo er nú ekki enda slík mál ekki mikið rædd á heimili Eyvans.  Verið var að ræða stærðir á vinnuvélum.

En úr því að við erum nú komin út í typpastærðarumræðudæmi þá gerði Eyvinn sér lítið fyrir og kallaði móður sína, tilvonandi eiginkonu sína fallegu, bestu tengdamömmu í heimi og allar þær ömmur sem hann mögulega gat fundið til fundar í ráðherrabústaðnum við Kópubraut.  Góð mæting var á fundinn og miklar umræður sköp-uðust um typpastærðir og -smæðir.  Flest það sem sagt var á þessum fundi er ekki prenthæft, hvað þá nethæft, en flestar voru þó sammála um það að stærðin skipti ekki öllu máli þegar kæmi að þessum samskiptum kynjanna.


Skiptir stærðin máli?

Þessi spurning hefur komið upp nokkrum sinnum síðustu vikur og hafa verið nokkuð skiptar skoðanir um þessi mál á heimili Eyvanns.  Það hefur komið fram að það fer svolítið eftir aðstæðum hverju sinni hvort stærðin skipti máli, það virðist fara svolítið eftir því hvað er verið að gera.  Dídan hefur mjög sterkar skoðanir á þessu viðkvæma máli og Mikka, au-pair stelpa hefur sínar skoðanir á þessu, báðar telja þær stærðina skipta mjög eða frekar miklu máli, því stærra því betra.  Eyvinn telur hinsvegar stærðina ekki skipta öllu máli heldur finnst honum skipta meira máli hvernig menn beita sér og hvort þeir séu snöggir að afgreiða hlutina.  

En hvaða vit hafa þær svosem á gröfum?    


Ef allir karlmenn væru eins og Eyvinn...

Eyvinn tók daginn snemma í morgun, vaknaði eins og alla morgna kl. 06.11 og hóf daginn á því sama og venjulega, húsverkum.  Eyvinn byrjaði á að ryksuga og þurrka af, svo var leirtaujið sett í þartil gerða vél og hreinsað og á meðan á öllu þessu stóð bakaði Eyvinn þessar líka fínu pönnukökur handa konu sinni tilvonandi og færði henni í rúmið.  Síðan voru börnin klædd í föt sín og haldið í gönguferð um hverfið, Eyvinn á það nefnilega til að leyfa Dídunni litlu fallegu að sofa út á svona frídögum.  Eftir gönguferðina með börnunum, skrapp Hr. E í höfuðstað Reykjanesbæjar, Keflavíkurhverfi og keypti blóm og pínu gotterí fyrir tilvonandi frú E, enda stúlkan staðið sig með stakri prýði í masternámi sínu og átti alveg skilið smá skammt af gúmmulaði.  

Næst á dagskrá hjá Eyvanum er að skella sér í þvott á fatnaði en Hr. E notar aldargamlar aðferðir við þá iðju, allt þrifið í höndum í tjörn einni tærri hér í týndu Njarðvík, en einhverra hluta vegna á Eyvinn svakalega erfitt með að læra á tæki þau er fólk notar við að þrífa þvott sinn.  Fatnaður á það til að koma alltof lítill og í nýjum litum útúr þessum hátæknibúnaði.

Bara ef allir karlmenn væru eins og Eyvinn, væri ekki lífið dásamlegt?


Hr. E. Stórhættulegur í umferðinni

Stóð mig að því í dag að borða pylsu með öllu nema steiktum og smá hráum, drekka kók, tala í símann, reykja mig í hel, lesa Moggann og keyra bíl, allt á sama tíma.  Ég ætti kannski að fá mér sjáfskiptan,  já eða bara bílstjóra...

Hræddur um að Óli vinur minn Guðmundsson umferðaröryggisgæji hefði ekki verið hress með kallinn hefði hann séð til hans.  


VG á móti virkjunum en.....

....Þeim tókst samt að virkja sitt fólk nokkuð vel í kosningabaráttunni.

Einn félagi Eyvans sem er harður stuðningsmaður þeirra sjálfstæðu hafði á orði að hann hefði gleymt að strika yfir nafn Árna Johnsen á kjörseðlinum og því mætti í raun segja að Árni hefði stolið því atkvæði.

Svo má segja að Framsókn sé ekki beint í mikilli framsókn, þessa stundina.


E verður Hr. E...

Nú hefur Eyvanum verið tilkynnt að brúðkaup hans muni fara fram þann 16. júní næstkomandi, Eyvanum til mikillar ánægju, enda Eyvinn búinn að reyna að draga Díduna sína litlu fallegu í hnapphelduna allveg síðan við fyrstu kynni.  Allar upplýsingar um væntanlegt pússerí má finna hér

Það hefur ýmislegt gerst á þessum annars ágæta degi, 16. júní í gegnum tíðina m.a.:

Gaf Ringó út plötuna "Bad Boy" 1978 (ekki nefnd eftir Eyvanum), Wings gáfu út plötuna "I´ve had enough" 1978, Boris Jeltsin varð forseti USSR 1991, Innocent III, páfi lést þennan dag árið 1216, John Scott og John H. Scott úr hljómsveitinni Pretenders létust þennan dag árin 1969 og 1982, Brezhnev varð forseti USSR 1977 og það merkilegasta af öllu, Óli Jó frændi minn og áhugamaður mikill um fluguveiði fæddist þennan dag 1976.  

 


Ég bara verð að fá´ða á hverjum morgni....

....Þ.e.a.s. Fréttablaðið.  Því fátt er betra en að sitja á dollunni og tefla við æðsta strump með þann snepil í höndum og lesa yfir fréttir dagsins í gær.  En einhverra hluta vegna hafa láglaunaðir blaðburðatæknar 365,- gleymt Eyvanum á ferð sinni um hverfið týnda.  Póstkassi Eyvans hefur ekki fengið Fréttblað í mallann svo dögum skiptir, Hvers vegna? Eyvinn spyr.

Eyvanum finnst bara ekki skemmtilegt að kúka með bossanum sínum ef ekkert er Fréttablað!

Skamm, skamm 365,-


Aukaspyrna á hættulegum stað?

Hvernig getur aukaspyrna í fótboltaleik verið á hættulegum stað? 

Eyvanum finnst akkúrat ekkert hættulegt við það að standa á fimmþúsund fermetra flóðlýstum grasfleti, annað mál ef aukaspyrnan væri á miðri Miklubrautinni á háannatíma í blindaþoku, það væri ekkert annað en stórhættulegt dæmi....

Eyvanum, óver and át!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband