Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Kaninn að fá leið á Paris...

Sá í fréttum hér í USA að nokkur slúðurblöð hafa tekið sig saman og ætla ekki að birta "fréttir" sem tengjast Paris Hilton í næstu viku, Hvers vegna veit ég ekki.  Kannski er kaninn bara búinn að fá leið á stelpunni.  Eitt þeirra gengur reyndar aðeins lengra og ætlar ekki einu sinni að skrifa neitt um borgina París. 

Frábært.   

Í staðinn verður sennilega skrifuð átján síðna grein um það að Angelina Jolie hafi fengið sér tattoo eða níu síður um að Britney Spears hafi bannað mömmu sinni að hitta börnin svo hefur örugglega einhver fengið sér nýjan kjól, það má skrifa eitthvað um það. 

Æðislegt.

Annars eru fréttatímarnir hér í USA algjör snilld, í fyrsta lagi eru nánast aldrei fréttir frá löndum utan USA (einstaka frétt frá Írak, einna helst ef kaninn sprengir sína eigin menn), það var kannski rætt um sprengjudæmið í London í þrjár sek. á meðan það var átta mínútna frétt um það að miðaverð í lestir hafi hækkað um 5 cent.  Í annan stað: Það eru aldrei sagðar neinar góðar eða skemmtilegar fréttir, heldur eru þetta heilu klukkutímarnir af þessi skaut þennan, hinn keyrði fullur á vegg og 81 árs gamlar konur virðast vera rændar á hverjum einasta degi, oft á dag.  Og C: það eru fokking auglýsingar á tveggja mín. fresti.

Ömurlegt.


mbl.is Fréttaþulur neitaði að byrja á frétt um París Hilton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

USA Today!

Jæja, þá erum við búin að vera með Regínu okkar á Childrens hospital í Boston í rúma viku.  Enn hefur allt gengið nokkuð eins og vonast var til en það má lesa allt um þessa aðgerð og hinar fyrri hér.

Hitinn í er nánast óbærilegur í Boston þessa stundina, rúmlega 30 gráður og á bara eftir að hitna næstu daga skv. Sigga stormi þeirra amerísku, John "The thunder" Storm sem sér um veðrið á Fox25 WFKA (dobuljúeffkeiei). 

Eyvinn hefur náð sér í smá lit á kroppmund í göngutúrum síðustu daga, svo mikinn lit að útsendarar körfuboltaliðanna eru farnir að hafa samband.  Reyndar er Eyvinn orðinn það dökkur að hann er farinn að taka til fótanna ef hann sér löggubíl......   

Bestu kveðjur á Línuna og alla hina....  


Hvernig pantar maður loftárás?

Tók eftir því um daginn þegar ég var að hlusta á fréttir á einhverri útvarpsstöðinni eftir eina af loftárásum BNA að fréttalesarakallinn orðaði það þannig að BNA menn hefðu pantað þessa loftárás. 

Eyvinn sá alveg fyrir sér símtalið sem átti sér stað á milli Loftárása Hut og stríðskallsins:

"Loftárásir Hut, góðan dag"

"Góðan dag, stríðskallinn hér, ég ætla að panta eina loftárás"

"OK, hvað viltu stóra?"

"Eitthvað sem drepur nokkra skæruliðskalla en ekki nema svona sex af okkar gæjum"

"Hvert á að send´ana?"

"Írak væri fínt"

"Ekkert mál, þetta verður komið eftir hálftíma.  Má bjóða þér tveggja lítra gos með á 200 kall?"

 

 


Eyvinn kvænist...

  ...Næsta laugardag og er undirbúningurinn nú alveg í botni, reyndar hefur þetta nú mest allt lent á Dídunni minni, vinkonum hennar og mæðrum okkar sem allar hafa staðið sig með stakri prýði og þá sérstaklega weddingplanerinn okkar hún Begga komin 8,2 mánuði á leið, takk allar. 

Svo verð ég að þakka strákunum fyrir steggjunina, þetta var frábær dagur. Listflug, bjór, bikiní, bjór, keila, bjór, vöfflusala á fjölförnum stað, bjór, pissustopp, skot, matur, bjór, bjór, bjór, Kafteinn.  Þynnka. 

 Gerist ekki betra. 


Smá pæling....

Ef við hefðum sent einhvern í bláum bol inná völlinn á lokamínútunum til að lúskra aðeins á dómaranum,  hefðum við þá bara tapað 3-0?
mbl.is Íslendingar sáu aldrei til sólar í fimm marka tapleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband