Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Komnir til baka.....

Stafsetningarvilla varð þess valdandi að Eyvinn og Hésinn enduðu í Denze í Ghana í stað Odense í Danmörku, ótrúlegt, sérstaklega vegna færslunar hér á undan.   Enn Ótrúlegri tilviljun réði því svo einnig að Ghönsk hjón lásu færslu Eyvans hér á undan um búslóðaflutninga og voru E og H því fengnir til að flytja búslóð þeirra Gnha og Gunmigha McNungo í Ghana um helgina.  Við félagarnir leigðum því reiðhjól með körfu og kláruðum að flytja rúmið og stólinn á rétt rúmlega klukkutíma og þá teljum við kaffi- og sígópásur með.  Síðan var haldið til Odense í Dan. og tekið á því.  Við náðum settu marki þar, skrúfuðum húsgögn sundur, fluttum og skrúfuðum sömu húsgögn saman aftur á öðrum stað á innan við 8 tímum (Takk fyrir hjálpina Oddur og Kristín).  Gerist ekki betra.  Reyndar var þessi ferð mjög sniðug, ferðast í 12 tíma unnið í átta tíma og dottíð í´ða í rúmlega 9 tíma.  Svona á þetta að vera.  Svo má líka koma fram að Eyvinn hitti konuna sína fallegu og börn í smá stund.  Lífið er víst ekki bara flutningar og bjórdrykkja....


Skyldi maður komast til Odense?

Nú eru Eyvinn, Hési Cool og Regína Krista að fara til Odense á föstudag og miðað við þetta er alltaf möguleiki á að lenda í hremmingum og enda í Denze í Ghana.  Svei mér þá.  Gæti reyndar verið ágætt því tilgangur ferðarinnar til Óðinsvé (fyrir utan að hitta konu og börn) er að fara að flytja búslóðina okkar og koma okkur fyrir í nýrri íbúð og þar sem flutningar eru ekki það allra skemmtilegasta sem maður tekur sér fyri hendur væri eflaust fínt að lenda bara í Ghana.

Dída, bið að heilsa öllum ef ég kem ekki á föstudag.........


mbl.is Afdrifarík stafsetningarvilla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband