Leita í fréttum mbl.is

VG á móti virkjunum en.....

....Þeim tókst samt að virkja sitt fólk nokkuð vel í kosningabaráttunni.

Einn félagi Eyvans sem er harður stuðningsmaður þeirra sjálfstæðu hafði á orði að hann hefði gleymt að strika yfir nafn Árna Johnsen á kjörseðlinum og því mætti í raun segja að Árni hefði stolið því atkvæði.

Svo má segja að Framsókn sé ekki beint í mikilli framsókn, þessa stundina.


E verður Hr. E...

Nú hefur Eyvanum verið tilkynnt að brúðkaup hans muni fara fram þann 16. júní næstkomandi, Eyvanum til mikillar ánægju, enda Eyvinn búinn að reyna að draga Díduna sína litlu fallegu í hnapphelduna allveg síðan við fyrstu kynni.  Allar upplýsingar um væntanlegt pússerí má finna hér

Það hefur ýmislegt gerst á þessum annars ágæta degi, 16. júní í gegnum tíðina m.a.:

Gaf Ringó út plötuna "Bad Boy" 1978 (ekki nefnd eftir Eyvanum), Wings gáfu út plötuna "I´ve had enough" 1978, Boris Jeltsin varð forseti USSR 1991, Innocent III, páfi lést þennan dag árið 1216, John Scott og John H. Scott úr hljómsveitinni Pretenders létust þennan dag árin 1969 og 1982, Brezhnev varð forseti USSR 1977 og það merkilegasta af öllu, Óli Jó frændi minn og áhugamaður mikill um fluguveiði fæddist þennan dag 1976.  

 


Ég bara verð að fá´ða á hverjum morgni....

....Þ.e.a.s. Fréttablaðið.  Því fátt er betra en að sitja á dollunni og tefla við æðsta strump með þann snepil í höndum og lesa yfir fréttir dagsins í gær.  En einhverra hluta vegna hafa láglaunaðir blaðburðatæknar 365,- gleymt Eyvanum á ferð sinni um hverfið týnda.  Póstkassi Eyvans hefur ekki fengið Fréttblað í mallann svo dögum skiptir, Hvers vegna? Eyvinn spyr.

Eyvanum finnst bara ekki skemmtilegt að kúka með bossanum sínum ef ekkert er Fréttablað!

Skamm, skamm 365,-


Aukaspyrna á hættulegum stað?

Hvernig getur aukaspyrna í fótboltaleik verið á hættulegum stað? 

Eyvanum finnst akkúrat ekkert hættulegt við það að standa á fimmþúsund fermetra flóðlýstum grasfleti, annað mál ef aukaspyrnan væri á miðri Miklubrautinni á háannatíma í blindaþoku, það væri ekkert annað en stórhættulegt dæmi....

Eyvanum, óver and át!


Verður Eyvinn næsti stjóri Liverpool?

Eyvinn átti stutt spjall við stjórnarmenn enska knattspyrnuliðsins Liverpool fyrir nokkru síðan þar sem ræddir voru möguleikar á því að Eyvinn tæki við stjórn liðsins Þegar Raffi Benn hættir en Eyvinn hefur náð undraverðum árangri með liðið í Championship manager leiknum.

Ákveðið var á þessum fundi sem haldinn var í Öskjuhlíðinni að könnun á bloggsíðu Eyvanns myndi vega þungt þegar ákvörðun um þetta verður tekin.

Lítillega var rætt um leikmannakaup sem Eyvinn myndi ráðast í verði hann valinn sem næsti stjóri og voru menn nokkuð sáttir um að kaupa Kobba á þakinu í markið og Kidda boy_toy á bekkinn auk þess sem menn voru æstir í að fá Díduna sem sérlegan ráðgjafa í búningamálum félagsins en hún hefur sem kunnugt er mikla reynslu þegar kemur að innkaupum á fatnaði og skóm.

Einnig var tekið nokkuð vel í að gera ónefndan bróður Eyvanns að lukkudýri en það var aðallega vegna þess að hann var sá eini sem ekki þyrfti sérstakan búning til starfans (Nú er Herra E væntanlega orðinn atvinnulaus Smile

Sjáumst á Anfield......


Gefum öndunum...

"Pabbi," Sagði sjö ára sonur Eyvans, "getum við farið og gefið öndunum brauð?  Gerðu það, plís."  Við þessi orð vaknaði Eyvinn eldsnemma fyrsta dag sumars. 

Ekki málið, Eyvinn og Vilhjálmurinn skelltu sér í bakarí eitt í Njarðvík, keyptu brauðmola, kleinuhring og geisladisk með Ljósalaginu 2000.  Svo var brunað í höfuðborgina okkar fallegu.  Nú skyldi gefa svöngum öndum brauð að eta...

"Pabbi, af hverju er brauðið okkar ekki borðað?"  Spurði sá stutti þegar við vorum búnir að kasta brauði útum allar trissur í hálft korter.

"Ja, nú veit ég ekki, kannski eru andarnir í þessum kirkjugarði bara ekki svangir," svaraði Eyvinn að bragði. 

"Við skulum prófa annan garð....."

 


Nú er rétti tíminn til að kaupa hlutabréf í Flugleiðum...

Eyvinn hefur undanfarna viku verið einn í koti Crying þar sem eiginkonan tilvonandi hefur verið á heimaslóðum Carls Bergssonar, Danmörku en þar mun hún ætla að setjast á skólabekk og halda heimili næstu árin.  Það er því nokkuð ljóst að Eyvinn á eftir að eyða töluverðum tíma í skítsæmilegum flugvélakosti þeirra Flugleiðamanna en eins og flestir vita þá er það ekki það ódýrasta í heimi.  Það á svo væntanlega eftir að hjálpa til við að fylla allar hirzlur þeirra félaga í Fl-grúppunni af peningum, bæta afkomu fyrirtækisins um rúmlega helling og skila þeim enn einu methagnaðarári. 

Nú er því rétti tíminn til að kaupa hlut í þessu batteríi...


Þetta er fyrir neðan allar hellur...

Í tilefni af því að sumarið er á næsta leiti og fólk að farið að gera sig klárt í að framkvæma eitt og annað í garðinum hjá sér hefur Eyvinn ákveðið að setja hér inn smá upplýsingar um það sem ætti að vera fyrir neðan allar hellur þannig að innkeyrslur og stígar sem hellulagðir eru endist sem lengst.

Fínt er að byrja á að jarðvegsskipta flöt þeim er helluleggja skal með því að grafa c.a. 80 sm og fylla í holuna með frostfríu efni, þetta skal þjappa vel með verkfæri sem hentar í þannig vinnu t.d. jarðvegsþjöppu en þær má leigja á næstu áhaldaleigu fyrir lítinn pening.  Næst skal setja nokkura sentimetra sandlag sem þarf að jafna og þjappa vel, þetta skal þjappa með aðeins minni gerð af jarðvegsþjöppu en í fyrra skiptið sem hægt er að leigja hjá sömu áhaldaleigu og áður.  Síðan er í raun ekkert annað að gera en að skella hellunum niður.

Gott er að nota hlífðarfatnað við þessa vinnu s.s. vinnugalla, hnéhlífar og vettlinga. 

Góða skemmtun og gangi ykkur vel.  


Ég er hestur og drykkjumaður...

Eyvinn er lestrarhestur mikill sem drekkur í sig þekkingu uppúr ritðu máli nútímablaðmennsku og það voru tvær greinar í Fréttablaðinu í morgun sem Eyvinn rak augun í og fannst nokkuð skondnar, önnur var um einhvern Alex sem geymdi bíla ókunnugra úti í tvær nætur, Eyvanum finnst nú ekkert slæmt við að geyma bíl úti í nokkra daga, það versta var kannski að þeir voru geymdir í ómalbikuðum húsgrunni í Keflavík, skaðabætur fyrir eigendur þessara bíla, ekki spurning!

Hin fréttin snérist um það að ónefndur formaður ónefnds stjórnmálaflokks sem býður fram til alþingis væri of feitur og passaði ekki í netta stóla þeirra Kastljóssmanna, Eyvanum finnst í raun óþarfi að eyða dýrmætu plássi á síðum Fréttablaðsins í þetta en skemmtilegast við greinina fannst Eyvanum ummæli ritstjóra Kastljóssins um að það sem fram færi í stúdíói Kastljóss færi ekki þaðan út, er ekki tilgangurinn með þessu stúdíói að koma sem mestu þaðan út og til sem flestra?  


Dr. Dolittle kominn frá DK...

Þá er Dr. Dolittle kominn frá DK þar sem stefnan var sett á að aðstoða tilvonandi eiginkonu við að koma sér fyrir í Óðinsvé, en þar hyggst stúlkan setjást á námsbekk einn góðan sem Dr. Dolittle keypti handa henni í IKEA og setti saman alveg sjálfur Smile

En ef við sleppum öllu gríni þá voru verzlaðir heilu bílfarmarnir af húsgögnum í þessa fínu íbúð sem við leigjum þarna á Fjóni.  Þegar kom að því að setja hlutina saman skrapp Dr. Doo á pöbbann ásamt Calla Bergs félaga sínum frá Tuborg og eftirlét Dídunni og Au-pair stelpunni Michaelu að koma húsgögnum saman, nett gaman að sjá þær með borvél í annari og teikningar í hinni Whistling.

Þetta virðist hafa gengið nokkuð vel hjá þeim stelpum því sjö dögum seinna vaknaði Doktorinn í þessu líka fína rúmi frá Jysk, endurnærður og til í slaginn á landi íss og elda, sem minnir Dr. Doo á það að hann þarf að fara að elda sjálfur....

....Konan litla fallega varð eftir í DK.   


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband