Leita í fréttum mbl.is

Mc Fáránlegt

Þeir sem þekkja McEyvann vita að þar fer maður sem borðar mikið af skyndibita, þar á meðal mun vera Mc nokkuð Donalds.  Eyvinn fór fyrir nokkrum dögum við annan mann á Makkann í Skeifu og var bara í nokkuð góðu skapi en þegar Eyvinn er í góðu skapi á hann það til að splæsa burger á mann og annan, en í þetta skiptið kostuðu tvær BigMac máltíðir rétt um 1900 kr. nokkuð eðlilegt.  McEyvinn var í góðu skapi í dag enda á ferðalagi í Danmörku og ákvað því að splæsa Makka á fjölskylduna, 5 manns, tökum þessa átta mánaða ekki með í dæmið.  Í þetta skiptið voru keyptar 4 BigMac máltíðir og stór skammtur af kjúklinganöggum og verðið litlar 1600 kr. ísl. Þetta finnst Eyvanum McFáránlegur verðmunur, reyndar var kokteilsósa ekki með í danska dæminu, það gæti nú skýrt málið Smile .

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halló halló 

Ég er nú bara alveg Mc sammála þér! Þetta er náttúrulega bara fyrir neðan allar Mc hellur  Helduru að Eyvinn kæri sig nokkkuð um að koma aftur á klakann eftir slíkar uppgötvanir?

Hafið það gott!

Kveðja frá McSakn Beggunni

Beggan (IP-tala skráð) 4.4.2007 kl. 21:03

2 Smámynd: Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson

Quarter pounderinn er miklu betri, keypti máltíð í dag (stóra máltíð) heilar 520 krónur í London.

Erum við að breytast í skyndibitafjölskylduna bróðir???????????

Og stóra spurningin léstu stækka máltíðina??

Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, 4.4.2007 kl. 22:11

3 identicon

hafið það Mc gott í danmörkinni og borðið ekki yfir ykkur af Mc skyndibita bið að heilsa á mama rosa. saknaðar kveðjur Inga Birna

Inga Birna (IP-tala skráð) 4.4.2007 kl. 22:37

4 identicon

Þetta er náttúrulega hinn mesti Mc skandall látum bláu höndina í málið.

Kv´

Ónefndi maðurinn (sem fékk hinn borgarann)

Jakob Hermannsson (IP-tala skráð) 8.4.2007 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband